Friday, April 14, 2006
bull sull

TIMBER!!!!! og hausinn á mér fer í klessu. Ég ætla "aldrei" aftur að drekka hvítvín.
Sat fyrir framan sjónvarpið áðan að reyna að fylgjast með því sem var að gerast, skipti síðan á rás 1 og þá var heimildarmyndin um Bob Dylan sýnd þar. Anskotans að ég hafi misst af helmingnum. Dylan var ekkert smá fyndinn í viðtölum, þessir fjölmiðlamenn eru asnar. Fáránlegar spurningar. Ég keypti svínaeyru handa hvolpinum mínum, honum fannst þau geðveikt góð. Mmm, svínaeyru. Elvar sagði við mig að hann hefði smakkað svona fyrir hunda og að honum fyndist það gott, ég trúði því smá augnablik, talandi um að vera svínaeyra.
Sumarið að fara að koma, lovely:)
Ég er búin að vera að reyna að gera þetta heimspekiverkefni og ég verð að finna mér eitthverja aðra spurningu. Það er ekker rangt við samkynhneigð, heitttúuðum finnst það kanski ekki en ég ætla ekki að fara að lesa eitthvað bull um hvað þeim finnst um það.
Ég ætla að leggja mig, jafnast ekkert á við sængina mína.
Elskiði friðinn
ibbs

Posted at 10:17 am by ibbastibba
Dankes (5)  




Wednesday, April 12, 2006
JEFF

Heido!

Ég er búin að finna ástina í lífi mínu. Hann er soldið loðinn, svartur og á það til að pissa stundum á sig. Það kemur fyrir að ég þurfi að halda á honum upp og niður stiga.

Ég er að tala um hann "Jeff", hvolpinn minn. Hann er yndislegur.



Annars er "We Made God" að koma að spila ekki næstu helgi heldur helgina eftir næstu. Það verður fjör.

Síðan er hér siðfræðileg spurning. "Hvað er rangt við samkynhneigð?"
(Verkefni í heimspeki)

elskiði friðinn
ibbs

Posted at 07:40 am by ibbastibba
Dankes (3)  




Friday, March 24, 2006
Músíktilraunir

Já, strákarnir í Antik komust áfram í músíktilraunum, flott hjá þeim. Strákarnir í Terra Firma rokkuðu það feitt að það þurfti næstum að senda einn á sjúkrahús, nefni engin nöfn Elvar:) En ég er alveg pottþétt á því að "We Made God" eiga eftir að rústa þessu, þeir komu að spila á UNICEF og ég trúði ekki mínum eigin eyrum hvað þeir voru góðir. En frumsýningin er á morgun, general í kvöld, allir að mæta á þetta frábæra leikrit og hlægið úr ykkur lungun. Dúndurfréttir eru að fara að spila í byrjun apríl á Gauknum, get ekki sagt að þeir séu góðir því ég hef aldrei farið á þá, en ég hef heyrt að þeir séu mjög góðir. Heyrðu það var ekkert fleira, elskiði friðinn.
ibbs

Posted at 01:29 am by ibbastibba
Dankes (10)  




Monday, March 13, 2006
Gauragangur...

Jájájájájá... Leiksýningin er svona soldið þreytandi núna. Komst ekki á Bad Plush útaf leikæfingu sem ég mátti ómögulega missa af. Ekki prump í bala að gerast hérna á Höfn. Reyndar var mjög fínt á "Hund í óskilum", þeir voru þræl fyndnir. Mamma kom frá Kanarí á fös. og er ég búin að reyna að "tyggja" í mig kjark til að biðja hana um einn greiða. Ég þori bara ekki að spyrja því ég er svo hrædd um að hún segji nei og það bara má ekki. Mjög erfitt, þetta er nefnilega svona sem hún getur sagt nei við og átt fullan rétt á því að sjálfsögðu en þá á hún eftir að brjóta mitt litla hjarta í sandkorn. Síðan þarf ég að fara að leita mér að íbúð í bænum, "ví". Öruglega ekki það léttasta í heimi. Síðan er það skóli, ég þarf að ákveða í hvaða skóla mig langar í. Ef einhver veit um skóla þar sem er kennt "heimspeki 200" og áfram þá "let me know". fyndið hvað það er "interesting" að læra um allar þessar kenningar og rökin með og á móti. en ég er að spá í að fara að drífa mig í skólann.
"check you later"
elskiði friðinn
ibbs

Posted at 04:10 am by ibbastibba
Dankes (7)  




Tuesday, March 07, 2006
Yeah!

Diskurinn "Hvar í Hvergilandi" með frábæru hljómsveitinni "Ókind" er komin til landsins samkvæmt nýjustu fréttum. Allir að hlaupa útí búð og kaupa(diskurinn fer í búðir fljótlega). Bad Plush á sunnudaginn næsta og José Gonzales á mán. eftir það minnir mig. Kúl. Fór á José á Airwaves og hann er alveg þrusu góður. Hvað er þetta með netið, ég var að downloada jeff buckley documentary og björk og þá kom bara eitthvað djöfulsins klám, í báðum. Ég skil þetta ekki, það stóð ekkert eitthvað porn né neitt þannig. Ég kæri mig bara ekki um þetta. Eeen næsta fös. koma trúbadorarnir "Hundur í óskilum" hingað á Höfn á vegum nemendaráðs og munu þeir spila í nýheimum kl:21:00 og er 1000 kall inn. Fréttir segja að þeir séu líka brjálæðislega fyndnir, en það á eftir að koma í ljós. Síðan vil ég þakka þeim sem komu á Hitt Húsið síðasta fim. Gaman að hitta alla og frábæra fólkið úr "Sudden weather chenges" sem voru á UNICEF. Takk æðislega og Doddinn og strákarnir í Ókind. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt kvöld. Ég var pínu stressuð áður en ég fór að syngja og keypti mér "chill out" drykk í 10-11 og hann virkaði. Reyndar ekki fyrr en Doddinn var byrjaður:) En ég hef ekkert merkilegt að segja nema elskiði friðinn.
ibbs

Posted at 06:55 am by ibbastibba
Danke (1)  




Tuesday, February 14, 2006
Blond redhead

x...xx

Já sæl veriði. Var að lesa um daginn um sálfærðilega sérhyggju, og hún(kenningin) fjallar um það að við gerum ekki neitt nema við fáum eitthvað útúr því. Við erum semsagt eigingjörn. Pínulítið til í því, en samt góð rök á móti líka.Hér kemur smá saga, vona að ég muni hana rétt. Abraham Lincoln, 16. forseti bandaríkjanna var að fara yfir hálfgerða mýri einn daginn með vini sínum og þeir voru semsagt að tala um þessa hyggju og var Lincoln með þessari kenningu. Við mýrina sá Lincoln svín sem lét aldeilis í sér heyra vegna þess að grísirnir hennar voru að sökkva í mýrinni. Lincoln hljóp þá út og bjargaði grísunum. Þegar hann kom til baka til vinar síns sagði vinur hans, "ef þetta var ekki gert af óeigingirni hvað var það þá?" En þá sagði Lincoln, " ef ég hefði skilið greyin eftir drukknandi þá yrði ég aldrei rólegur, þarna var ég að hugsa um hvernig mér liði ef ég myndi ekki hjálpa þeim". Það er soldið "point" í þessu en mér finnst kanski ekki beint hægt að segja að hann sé/við öll eigingjörn. Eflaust margir eru það, en flest okkar eru nú með gott hjarta. En samt soldið fyndið ef maður hugsar útí þetta, við gefum pening til UNICEF t.d. og okkur líður mjög vel með okkur eftir á, allir að hrósa manni og maður er hálfgerð "hetja". En allavega,vakti þessi hyggja mikin áhuga hjá mér. Þemavikan í skólanum byrjar næsta mán., ég er í útvarpshóp, gleymdi reyndar helv. fundinum í dag. Sorry. En enginn má gleyma 2.mars í hinu húsinu kl:20:00. Æðislegir tónleikar með ljúfum og fallegum nótum:) Elskið friðinn
ble
ibba

Posted at 12:54 pm by ibbastibba
Dankes (10)  




Friday, February 03, 2006
Við unnum menningarverðlaunin!

Nemendur FAS unnu menningarverðlaun Hornafjarðar fyrir UNICEF tónleikana og Superstar. Þetta er nú alveg glæsilegt og frítt föruneyti sem tók við verðlaununum;) En ég hef verið að skoða mikið af gömlum plakötum frá 66-71 þar sem listamenn teiknuðu plaköt fyrir tónleika. en annars segji ég bara bless og elskiði friðinn. ibbs

Posted at 06:46 am by ibbastibba
Dankes (6)  




Wednesday, February 01, 2006
Þriðjudagstónleikar...

Þriðjudagstónleikarnir sem voru í gær heppnuðust aldeilis vel fannst mér. Skúffukökurnar sem strákarnir gerðu voru mjög góðar og seinni uppáhellan á kaffinu var ansi góð. Smá erfiðleikar með einhverja snúru hjá Modis í lokin en allt gekk upp á endanum. Þá verður kvikmyndakvöld á fim. held ég og uppboð í aðsigi. Í heimspeki í dag vorum við að ræða boðorðakenninguna, djöfulsins bull er hún, en samt áhugavert að ræða hana. Vildi að fleiri væru í tímanum, fleiri persónur, þá er ég að meina fólk sem er á móti manni, það yrði gaman:) Það verður þemavika í skólanum núna í febrúar og skráði ég mig í útvarpshópinn. Það er búið að láta mig fá hlutverk í leikritinu Gauragangur sem leikfélagið á Höfn ætlar að sýna. Ég mun leika Guðfríði eða guðríði man ekki alveg hvort nafnið það var. Hún er systir orms sem er aðal strákurinn. ég er víst algjör sportfíkill í því leikriti, ég mun gera mitt besta að fela það að ég sé það ekki:) Ekkert mikið annars að frétta nema það að Don't judge us by our music mun spila í hinu húsinu 2.mars kl:20:00 ásamt ókind og Doddanum. Skemmtilegt það og að sjálfsögðu er frítt inn. Takk fyrir mig og elskiði friðinn.

ibbs


Posted at 02:52 am by ibbastibba
Dankes (2)  




Monday, January 23, 2006
hitt Húsið

Ég og Elvar Bragi (Don't judge us by our music)munum spila í hinu húsinu 2.mars ásamt tveim örðum hljómsveitum. Auglýst betur seinna. annars hef ég bara ekkert að segja í bili. Þangað til næst. síjú. og elskiði friðinn.
ibbs
p.s. vil þakka fyrir hönd nemendafélagsins, öllum sem komu á Pakkhússkvöldið s.l. föstudag.

Posted at 11:22 am by ibbastibba
Dankes (2)  




Tuesday, January 17, 2006
Skítakuldi er hugarástand...

Það er alveg rosalega kalt úti. Ef maður væri mikið kvefaður væri líklegt að sá fengi nokkur horgrýlukerti.

Talandi um hor að þá lendir maður oft í því að sá sem maður er að tala við er með smá svona hor sem stendur út úr nefinu. Það er ekkert fyndið við það, ég læt einsaklinginn oftast alltaf vita. En ég lenti í einu skemmtilegu í morgun. Var að tala við einhvern og þá var þunn horflygsa sem stóð útúr nefinu á þessum einstaklingi og flygsan fór út ef hann andaði út með nefinu en inn þegar hann andaði inn. Þetta truflaði mig ekkert smá mikið því mér fannst þetta nokkuð fyndið. Það fyndið að ég sagði ekki frá þessu. Ég var kanski pínu vond. Sorry

Fór í tíma klukkan átta í morgun. Síðan er ekki tími fyrr en klukkan eitt. Rosalega leiðinlegt að fá svona studatöflu. Ég bý útí sveit og ekki fer ég að reka pabba úr vinnunni, þannig að ég heng í skólanum.

Fékk sent e-mail um daginn sem gerði mig örlítið forvitna. Þetta var hálfgerð ritgerð. Innihald ritgerðarinnar var mjög spennandi fyrir suma, ekkert neitt rosalega fyrir mig en samt gaman að vita þetta, ef þetta er satt. Tilbúin? Það var verið að segja að Kínverskir sjómenn hefðu fyrst farið kringum hnöttinn en ekki Columbus. Það hafið verið fundið kort sem gæfi það til kynna. Ég nennti ekki að lesa alla ritgerðina. Ég vona að ég sé ekki að varpa einhverju svaðalegu topsecret leyndarmáli á veraldarvefinn. Ef ég er að því þá er það þeim að kenna sem sendi þetta á vittlaust e-mail! :)

En ég held að ég hafi ekkert að segja í bili. Elskiði friðinn

ibbs


Posted at 02:51 am by ibbastibba
Dankes (4)  




Previous Page Next Page


Ég heiti Ingibjörg Lilja(ibba)


   





<< February 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29

Bloggarar
http://www.blog.central.is/bene http://www.blog.central.is/yvett http://www.folk.is/palrun http://www.folk.is/azza http://nannarella.blogdrive.com http://rosin.blogdrive.com http://www.internet.is/gisli7 http://http://dontjudgeus.blogdrive.com http://www.blog.central.is/kruttlingar http://www.simnet.is/fifusker http://www.blog.central.is/oggi16 http://steiniteague.blogspot.com
Myndir
Afmæli Hildar og Þóreyjar 2004#1hpublic.fotki.com/ibba
Afm. Hildar og Þóreyjar#2 public.fotki.com/ibba2
Jólin 2004 http://public.fotki.com/ibbastibba Menninganótt og Innipúkinn 2005 http://public.fotki.com/ibba3 Útilega með Svövu á Emiliönu Torrini tónleika http://public.fotki.com/ibba4





Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed