Thursday, July 27, 2006
Bull sull

Jæja ég held að það sé komið nóg af þessu blogg veseni. Hittumst heil, einhversstaðar.
Elskiði friðinn
ibbs

Posted at 04:57 pm by ibbastibba
Kvitta takk;)  




Friday, July 21, 2006
Amsterdam

Ég og Haffi erum að fara til Amsterdam 8. október á Mogwai tónleika. Man hlakka til. Annars erum við að fara að keyra í bæinn, afmæli hjá Stebba og tónleikar hjá We made god.....Mjög fínt. Búin að fá íbúð í bústaðarkverfinu, frábært. Þá þarf maður ekki að hafa neinar áhygjur af því lengur.
Later og elskiði friðinn
Ibbs

Posted at 05:45 am by ibbastibba
Kvitta takk;)  




Monday, July 10, 2006
Home.....home

Hvað er með bændur að geta ekki slátrað kindunum sínum á venjulegan hátt, frekar láta þeir saklaust fólk keyra yfir þær og fá síðan borgað fyrir það? Sórhættulegt.
Búin að kaupa miða á Innipúkann, missi allavega ekki af þeim tónleikum.
Ekkert búið að gerast held ég, var í bænum núna um helgina, skoðaði myndir frá innipúkanum og airwaves síðan í fyrra hjá jónu, dísus hvað þær voru fyndnar, trúi ekki hvað maður var ruglaður. Anywho....
elskiði friðinn
ibbs

Posted at 04:56 pm by ibbastibba
Danke (1)  




Thursday, June 22, 2006
Fyndið



Heh, þarna er mamma og ég og síðan Hlynur og Gummi fyrir ofan. Humarhátíð 1994, var með frétt núna á hornafjordur.is. Hló pínu mikið þegar ég sá hana...:)



Posted at 08:20 am by ibbastibba
Danke (1)  




Saturday, June 10, 2006
úff

Jæja þá er maður komin heim. Það var æðislegt í Danmörku, frábært veður allan tímann og þar er hægt að segja að ég hafi eitt aðeins of miklu. Keypti mér gamla olympus myndavél sem fær 5 stjörnur í dóma. Mjög fín. Síðan er ég hætt í Bláa Blóminu, farin að vinna á Olís. Heh fyrsti dagurinn í dag, það var mjög fínt, ágæt tilbreyting, fáránlegt hvað maður þarf alltaf að vera að skipta um umhverfi, ég tolli allavega ekki lengi á sama stað. En sagan um Bláa Blómið er þó eilítið lengri en ég nenni ekki að fara að segja hana hér. Belle and Sebastian tónleikar ásamt emiliönu torrini verða 29. júlí á Borgarfirði eystra, það verður gaman. Kanski að maður hafi þetta bara árlegt að fara á Borgarfjörðinn. Annars er ekkert að frétta eins og vanalega, nema það að ef ég kemst ekki inní MH þá ætla ég að flytja mig til Danmerkur. Þar er gott að vera. Öll familian verður þar eftir nokkur ár. Ætlaði að kaupa miða á Hróarskeldu en sá að öll flug eru uppbókuð, nenni ekki að fara með ferjunni. En annars elskiði friðinn og later
Ibbs
Ps. keypti disk með CAT POWER í DK, ágætur það sem ég er búin að hlusta á. Tékkit át.

Posted at 01:17 pm by ibbastibba
Dankes (3)  




Wednesday, May 31, 2006
Off to Denmark

Jæja ég var að klára að vinna, bilað mikið að gera. Allir að kaupa blóm.
Er að fara að leggja í hann til RVK og síðan kl:05:00 fer ég á Keflavíkurflugvöll og síðan til Danmerkur. Sjíbbí.
Sé ykkur eftir ca viku. Hafiði það gott
Elskiði friðinn
Ibbs

Posted at 11:26 am by ibbastibba
Danke (1)  




Thursday, May 18, 2006
Sjibbi!

Finnst ykkur ekki skrítið hvað maður kann mikið af lögum sem manni langar ekki að kunna? Hvað maður veit um suma sem maður langar ekkert að vita. Hvað fólk veit um mann sjálfan sem manni langar ekkert að það veit. Já, það er margt í heiminum sem manni langar ekki að sé til, svosem að skera sig á löppunum með rakvél, ég geri það mjög sjaldan, en núna áðan, ái.
Byrjuð að vinna á fullu, var að taka upp fullt af álfa og belju styttum, skemmtilegt, síðan var ein ugla sem var það ljótasta sem ég hef séð. Anyway...
Ég vona að ég og elvar förum nú að fara að spila fljótlega, spiluðum fyrir framsóknarmenn síðasta lau. mamma stollt, heh. Síðan tók elvar nokkur "partý" lög fyrir þau og þá trylltust allir, frábærir þessir framsóknarmenn, þeir leifðu honum ekki einu sinni að hætta:) Good times. En jóna veistu hverju ég var að springa úr hlátri af um daginn? Þegar þú dast af baki og og varst með mold í tönnunum og kallaðir iiingibjörg....haha. Ég hélt í alvöru að ég myndi deyja úr hlátri í skriðunum:) Sakna þín rosa smosa mikið. Later
Elskiði friðinn
ibbs

Posted at 04:24 pm by ibbastibba
Danke (1)  




Friday, May 05, 2006
Hundabæli úr hárum.

Ég er komin með stutt hár. Það hefur nú bara ekki gerst í mörg ár, ef ég gæti bara ekki sagt um tíu ár. Það hefði verið hægt að gera hundabæli út öllum hárunum sem fuku af mér eins og þau hafi verið fegin að losna frá hausnum á mér. Hvort sem það sé gott eða vont. Jóna, i've made my desision, ég ætla ekki á hróarskeldu, frekar festivalið þarna í Sviss sem byrjar á sama tíma en er í tvær vikur, þ.e.a.s. ef ég fæ frí í vinnunni sem ég efa stórlega. Fer út 1.júní til dk, hef ekki farið til útlandanna í ein 6 ár. En Jóna þú kíkir bara yfir til Sviss þegar þú verður á Hróarskeldu:)
Elskiði friðinn
ibbs


Posted at 03:07 pm by ibbastibba
Dankes (5)  




Sunday, April 30, 2006
Bíltúr

Vissi ekkert hvað ég ætti að gera áðan, þannig að ég skrapp í bíltúr með Jeff til Djúpavogar. Fínt verður. Stoppuðum síðan hjá ströndinni sem er þarna einhverstaðar á milli. Jeff fílaði sig ekki lítið. Ég kippti með mér nokkrum skeljum og þegar ég var búin að láta jeff í bílinn sá ég að hann hefði kippt með sér einni krabbalöpp. En annars svaf hann bara mest alla leiðina og ég syngjandi með nafna hans. Skemmtileg ferð. Stundum er virkilega gaman að keyra bara.
En í allt aðra sálma þá er skólinn búinn, fer í próf 9. og 12. maí og þá er ég búin. Smá fyllerí á fös., ég og Anna Jóna vorum fyrst bara tvær heima hjá henni, Konný hjá ömmu sinni og síðan fórum við á Hornið og ég var í "Essinu mínu" að hjálpa Bjarna á barnum.
Hverjum langar að fá Portishead til Íslands? Það yrði magnað.
Elskiði friðinn
ibbs

Posted at 11:00 am by ibbastibba
Dankes (3)  




Tuesday, April 25, 2006
Já líttu á hvað ég er....

flott myndbandið hjá "Ókind", það er alveg satt að hann Steini er fallega skapaður:) hehe

En We made god komu hérna á fjörðinn síðasta fös. og spiluðu fyrir lýðinn. Ótrúlega flott hjá þeim, og var þrusu gaman á pakkhúskvöldinu, týndi skónum mínum reyndar en ég á aðra. Mikið drukkið og mikið sungið, þá aðalega ég og ipodin hans bigga vorum góð saman að syngja Jeff Buckley og Portishead. Æjj þetta var magnað, fullt af grúbbíum fyrir þá þó ein þeirra, þeir hafi verið eilítið smeikir við:) Vil ég bara þakka þeim kærlega fyrir komuna og þið eruð velkomnir hvenær sem er aftur. Forsetinn er í töluðum orðum núna hér á Höfn og fengum við að spurja hann nokkurra spurninga áðan í Nýheimum, ágætur maður hér á ferð. Síðan held ég ræðu í kvöld í íþróttahúsinu og ávarpa forsetann og forsetafrúna virðulega og tala síðan um starfsemi okkar í nemendaráðinu og framvegis. Það er hægt að segja að ég sé með pínu hnút í maganum en alveg dúndurræða sem ég og Emil sömdum í gærkveldi með smá hjálp frá mömmu hans. en veriði sæl og elskiði friðinn
ibbs

Posted at 05:55 am by ibbastibba
Dankes (2)  




Next Page


Ég heiti Ingibjörg Lilja(ibba)


   





<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Bloggarar
http://www.blog.central.is/bene http://www.blog.central.is/yvett http://www.folk.is/palrun http://www.folk.is/azza http://nannarella.blogdrive.com http://rosin.blogdrive.com http://www.internet.is/gisli7 http://http://dontjudgeus.blogdrive.com http://www.blog.central.is/kruttlingar http://www.simnet.is/fifusker http://www.blog.central.is/oggi16 http://steiniteague.blogspot.com
Myndir
Afmæli Hildar og Þóreyjar 2004#1hpublic.fotki.com/ibba
Afm. Hildar og Þóreyjar#2 public.fotki.com/ibba2
Jólin 2004 http://public.fotki.com/ibbastibba Menninganótt og Innipúkinn 2005 http://public.fotki.com/ibba3 Útilega með Svövu á Emiliönu Torrini tónleika http://public.fotki.com/ibba4





Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed